„Volcano" einkennandi fyrir Ísland

mbl.is/Júlíus

Neytendastofa segir að orðið volcano þýði eldfjall eða eldstöð og ljóst að það heiti sé mjög einkennandi fyrir Ísland. Því sé ekki hægt að fallast á að notkun heitisins geti notið einkaréttar.

Volcano Iceland ehf. leitaði til Neytendastofu vegna notkunar V.D. Hönnunarhúss ehf. á heitunum Volcano Design og Volcano Icelandic Design. Taldi Volcano Iceland að notkunin gæti valdið ruglingi við Volcano Iceland enda séu vörumerkin bæði notuð fyrir hönnun á tískufatnaði.

„Orðið volcano þýðir eldfjall eða eldstöð og ljóst að það heiti er mjög einkennandi fyrir Ísland. Þó svo heitið sé ekki beint einkennandi fyrir starfsemi fyrirtækjanna er heitið almennt heiti og eðlilegt að það sé notað til þess að vekja athygli á íslenskri hönnun.

Telja verði útilokað að heitið fengist skráð sem orðmerki enda bæði fyrirtækin fengið heitið skráð sem myndmerki hjá Einkaleyfastofu. Heitið getur því ekki notið einkaréttar," segir á vef Neytendastofu.

Var því niðurstaða Neytendastofu sú að notkun V.D. Hönnunarhúss á heitunum Volcano Design og Volcano Icelandic Design væri ekki brot á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert