Birgitta og Michael Moore í samstarfi

Moore kynnir mynd sína Sicko á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið …
Moore kynnir mynd sína Sicko á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2007. Reuters

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og Michael Moore, einn þekktasti vinstrimaður Bandaríkjanna, verða meðal þátttakenda í pallborðsumræðum um baráttu almennings gegn fjármálaöflunum á morgun, miðvikudag.

Auk þeirra Birgittu og Moore taka þau Chris Hedges, Margaret Flowers, Kevin Zeese og Tangerine Bolen þátt í umræðunum.

Moore er einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims og má nefna að mynd hans Fahrenheit 911 sló aðsóknarmet og hlaut Gullpálmann í Cannes á sínum tíma.

Þá seldist bók Moores um forsetatíð George W. Bush, Stupid White Men, eins og heitar lummur á sínum tíma og kom meðal annars út í íslenskri þýðingu. 

Hægt verður að fylgjast með umræðunum hér en þær hefjast klukkan fimm síðdegis að staðartíma á austurströnd Bandaríkjanna á morgun, miðvikudaginn 18. janúar, eða klukkan 22.00 annað kvöld að íslenskum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert