Ármann verður bæjarstjóri Kópavogs

Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki og Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa …
Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki og Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa á blaðamannafundinum. mbl.is/Ómar

Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Y-lista Kópavogsbúa hafa myndað nýjan meirihluta í Kópavogi og undirritað samkomulag um málefnasamning og skiptingu embætta. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna, verður bæjarstjóri, Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista Kópavogsbúa, verður formaður bæjarráðs og Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, varaformaður. Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, verður forseti bæjarstjórnar.

Samkomulag er á milli nýja meirihlutans og Guðrúnar Pálsdóttur, fráfarandi bæjarstjóra, um að hún komi á ný til starfa sem sviðsstjóri hjá Kópavogsbæ. Gengið verður frá því samkomulagi eftir að meirihlutinn hefur formlega tekið við. Fyllsta traust ríkir á milli nýja meirihlutans og Guðrúnar, segir í fréttatilkynningu frá nýja meirihlutanum.

Viðræður fulltrúa þessara þriggja flokka um myndun nýs meirihluta hófust á föstudag og lauk á miðvikudagskvöld.

Málefnasamningurinn verður kynntur fulltrúaráðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks síðar í dag.

Bæjarstjóraskipti fara fram á bæjarstjórnarfundi nk. þriðjudag, 14. febrúar, og á sama tíma tekur nýi meirihlutinn formlega við stjórnartaumunum.

Samkomulagið er nú kynnt á blaðamannafundi sem hófst kl. 16.30.

Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna, verður bæjarstjóri Kópavogs.
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna, verður bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/Brynjar Gauti
Guðrún Pálsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Kópavogi, verður sviðsstjóri hjá bænum.
Guðrún Pálsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Kópavogi, verður sviðsstjóri hjá bænum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert