Spornað gegn ólöglegum útflutningi

mbl.is/ÞÖK

Safnaráð mun eiga fund með fulltrúa breska fyrirtækisins P&H Jewellers á morgun þar sem sérfræðingar á vegum ráðsins munu skoða þá skartgripi sem fyrirtækið hyggst flytja úr landi. 

Tilefnið er auglýsing breska fyrirtækisins í Fréttablaðinu laugardaginn 4. febrúar sl. þar sem fólk er hvatt til að koma með gull og skartgripi til mats og mögulegrar sölu, hefur safnaráð komið á fundi með fulltrúa fyrirtækisins þar sem sérfræðingar á vegum ráðsins munu skoða þá skartgripi sem fyrirtækið hyggst flytja úr landi.

Var fundinum komið á í ljósi ákvæða laga nr. 105/2001 um flutning menningarverðmæta úr landi og um skil menningarverðmæta til annarra landa, en safnaráð sér um framkvæmd laganna. Skv. ákvæðum laganna má eigi flytja úr landi menningarverðmæti sem uppfylla skilyrði laganna, svo sem forngripi (gripi eldri en 100 ára), nema að til komi formlegt leyfi safnaráðs, segir í tilkynningu frá ráðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert