Forsetinn: „Hinn ágæti Kínverji“ Huang Nubo

Huang Nubo vill byggja upp ferðaþjónustu víðar á Norðurlöndum.
Huang Nubo vill byggja upp ferðaþjónustu víðar á Norðurlöndum. Ernir Eyjólfsson

„Síðan í fjórða lagi náttúran. Þessi ótrúlega náttúra sem okkur er einhvern veginn svo sjálfsögð og aðgengileg ... ekki aðeins fagrir fossar og fjöll og jöklar heldur líka auðnin sjálf, það að geta verið einn í náttúrunni,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og tók fram hvernig „hinn ágæti Kínverji“ Huang Nubo hefði kynnt auðlindir auðnanna fyrir Íslendingum.

Um þá uppgötvun sagði forsetinn í ræðu á hádegisfundi viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, sem ítarlega hefur verið sagt frá á mbl.is:

 „En eins og hinn ágæti Kínverji hefur svo rækilega bent okkur á er það orðið veigamikið viðskiptaverðmæti í því að geta verið einn uppi í íslenskum óbyggðum, sérstaklega fyrir fólk sem aldrei hefur kynnst því að vera með sjálfu sér og náttúrunni án þess að hafa milljónir manna í kringum sig.“

Ísland í einstakri stöðu í veröldinni

Forsetinn rakti því næst mikinn uppgang í ferðaþjónustunni eftir bankahrunið og hvernig fyrirtæki á borð við Icelandair hefðu skilað methagnaði.

„Vandamál okkar Íslendinga að mínum dómi á þessum áratug verður hvernig ætlum við að taka á móti rúmlega milljón manns á hverju ári. Hvernig ætlum við að skipuleggja landið? Hvernig ætlum við að skipuleggja ferðaþjónustuna og skapa okkur tækifæri úr þessum miklu möguleikum?

Auðlindirnar sem við búum að eru þess vegna allar á þann veg að verðmæti þeirra á þessari öld mun halda áfram að vaxa. Ég veit ekki um neitt samfélag jafn fámennt sem nýtur þeirra forréttinda að sitja að svo fjölþættum auðlindum í sínu landi eins og við gerum hér á Íslandi,“ sagði forsetinn en áður en hann nefndi náttúruna vék hann að sjávarauðlindinni, hreinu orkunni og loks hreina vatninu sem miklum landkostum á komandi öld tækifæra.

„Við mættum vera meiru klaufarnir ef okkur tækist ekki að skapa okkar farsæld úr þeim efniviði. Til viðbótar höfum við ótrúlega hæfileikaríkt og vel menntað fólk,“ sagði Ólafur Ragnar um mannauð Íslendinga.

Öfundaðir vegna tengslanna við Kína

Forsetinn sagði aðrar þjóðir renna öfundaraugum til Íslendinga þegar samskiptin við Asíurisanna, Kína og Indland, væru annars vegar.

„Það eru margir sem öfunda okkur af því hve náin tengslin eru sem við höfum komið á við til dæmis ráðamenn í Kína,“ sagði forsetinn og benti á að hann hefði á síðasta áratug eða svo  tekið á móti fleiri sendinefndum frá Kína en frá ríkjum Evrópu samanlagt.

„Ég tel að það sé í sjálfu sér ekkert annarlegt við þessar sendinefndir, að það sé engin ástæða til þess að fyllast einhverjum grunsemdum vegna þess. Heldur einfaldlega er þar um að ræða þjóð sem að horfir á veröldina og vill leita að tækifærum og reynslu í samræðum við aðra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert