Heimboð Íslendinga vöktu víða athygli

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þátt í átakinu Ísland …
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þátt í átakinu Ísland allt árið og bauð upp á pönnukökur. mbl.is/Golli

Heimboð Íslendinga til erlendra ferðamanna í tengslum við markaðsverkefnið „Ísland allt árið“ náði að kitla fréttanef fréttastjóra ótal fjölmiðla.

Fréttir um átakið birtust í 57 löndum og þeirra á meðal eru margar af stærstu fréttastofum heims. Þá náðu heimboðin miklu flugi í samfélagsmiðlum af öllu tagi.

Heimboðin voru upphaflega hugsuð sem upptakturinn að þriggja ára markaðsverkefni, „Ísland – allt árið“, sem miðar að því að fjölga erlendum ferðamönnum utan hins hefðbundna ferðamannatíma um sumarið. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og mikill fjöldi Íslendinga um allt land tók þátt í verkefninu við miklar og góðar undirtektir erlendu gestanna og heimspressunnar, segir í frétt frá iðnaðarráðuneytinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert