Bað hana að leyna bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, bað systurdóttur eiginkonu sinnar að leyna bréfum sem hann sendi henni næstu áratugina. Bréfin voru skrifuð annars vegar skrifuð á tímabilinu ágúst til nóvember 1998 og hins vegar á tímabilinu apríl til júní 2001. Þá var stúlkan 10-14 ára og 16-17 ára.

Þetta kemur fram í umfjöllun í nýjasta tölublaði Nýs lífs, sem kemur út í dag undir yfirskriftinni „Meint kynferðisbrot Jóns Baldvins“.

Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um samfellda háttsemi að ræða og því væru hin meintu eða ætluðu brot vegna bréfanna frá 1998 fyrnd.

Fyrningin ætti hins vegar ekki við um bréfin frá 2001. Ríkissaksóknari tók því ekki afstöðu til þess hvort bréfin frá 1998 og háttsemi Jóns Baldvins bryti gegn hegningarlögum. Í einu bréfanna bað Jón Baldvin Guðrúnu að halda bréfunum leyndum „þangað til 50 árum eftir okkar dag“.

Sendi bréfið í Hagaskóla

Þegar Guðrún var 14 ára sendi Jón Baldvin bréf stílað á Guðrúnu Harðardóttur, 8. bekk, Hagaskóla við Hagatorg. Þar segir að ástæðan fyrir því að hann sendi henni bréfið í gegnum Hagskóla sé sú að henni þyki ef til vill óþægilegt að fá þessi bréf heim til sín. 

Undir áhrifum áfengis og bókar

Samkvæmt umfjöllun Nýs lífs viðurkenndi Jón Baldvin í yfirheyrslum hjá lögreglu að hafa farið yfir strikið með bréfi sem hann sendi Guðrúnu ásamt bók. Hann sagðist hafa verið undir áhrifum áfengis og að bókin hefði haft þessi áhrif á hann, en þar eru berorðar kynlífslýsingar. Hann neitaði að hafa haft nokkuð kynferðislegt í huga gagnvart Guðrúnu, um væri að ræða bréfaskriftir á milli fullorðins fólks, en Guðrún var 16 -17 ára á þessum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert