Facebook-maður í gæsluvarðhald

Maðurinn sem sérsveit ríkislögreglustjóra handtók á heimili sínu í Reykjanesbæ í gærkvöldi var í dag leiddur fyrir dómara héraðsdóms Reykjaness í dag sem dæmdi manninn í gæsluvarðhald til 5. mars.

Þetta kemur fram á vefsíðu Víkurfrétta.

Maðurinn var handtekinn eftir að ábendingar bárust um undarlegt háttarlag hans á Facebook-síðu. Þar hafði maðurinn sett inn myndir af sér við að handleika skotvopn og einnig myndir af ætluðu sprengiefni og af því þegar fiskikar var sprengt.

Lögregla skoðaði síðu mannsins og ákvað þegar að grípa til aðgerða. Sérsveit ríkislögreglustjóra var fengin til að fara inn í íbúð mannsins og handtaka hann.

Hann tók á móti sérsveitarmönnum með hníf að vopni, en var fljótt yfirbugaður og færður í fangageymslur.

Frétt Víkurfrétta

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert