Hefur aldrei séð gögnin

Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson

Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hefur ekki séð kæruna frá stjórn FME né heldur þau gögn sem hún er sögð byggjast á. Hann lýsir sig saklausan af öllum sakargiftum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Skúli Bjarnason, lögmaður Gunnars,  hefur sent frá sér.

Þar kemur fram að Gunnar hafi ekki aðeins verið rekinn löglaust og fyrirvaralaust úr einu af lykilembættum íslenskrar stjórnsýslu á endurreisnar- og siðbótartíma, heldur hafi hann samdægurs verið kærður til lögreglu.

Einhver hefur óheftan aðgang að gögnum Landsbankans

„Máti hver fyrir sig á hvaða réttarfar þetta minnir. Hvorki Gunnar Þ. Andersen né undirritaður (Skúli Bjarnason) hafa fengið kæruna í hendur eða þau gögn sem hún er sögð byggja á. Í uppsagnarbréfi sem umbjóðanda mínum var afhent í morgun er vitað til bréfs frá Landsbankanum sem virðist hafa verið fengið þaðan í gær. Upplýsingar sem fram koma í téðu bréfi bankans eru sagðar á meðal nokkurra nýrra brottrekstrarástæðna umbjóðanda míns. Svo lítur út sem einhverjir hafi óheftan aðgang að alls kyns upplýsingum úr Landsbankanum. Umbjóðandi minn verður hins vegar eins og svo oft áður í þessu ótrúlega ferli að beita ágiskunum. Í fréttum hefur verið látið að því liggja að kærumálið tengist tilteknum stjórnmálamanni. Alltaf er slæmt þegar stigið er á tær, einkum þær sem tengjast bæði peningavaldi og pólitík. Það skyldi þó aldrei vera að í sjálfri kærunni sé að finna lykilinn að lausn gátunnar um raunverulegar ástæður tafarlauss brottrekstrar?

Gögn frá Landsbankanum um umræddan stjórnmálamann hefur umbjóðandi minn aldrei sé þrátt fyrir fullyrðingar fjölmiðla nú í dag um hið gagnstæða,“ segir í tilkynningu frá Skúla Bjarnasyni lögmanni Gunnars.

Á vef RÚV í dag var fullyrt að stjórn Fjármálaeftirlitsins hefði ákveðið að kæra Gunnar Andersen forstjóra stofnunarinnar til lögreglu fyrir að afla sér gagna um fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns með ólögmætum hætti. Starfsmaður Landsbankans mun samkvæmt heimildum RÚV hafa komið með gögnin heim til Gunnars í fyrradag.

Málið sent til dómstóla

Skúli segir að Gunnar lýsi sig eins og áður fullkomlega saklausan af öllum sakargiftum, jafnvel þótt hann hafi af því bitra reynslu í samskiptum við stjórn FME, en stjórnin, að sögn Skúla, hefur beitt ótrúlegum útúrsnúningum og ítrekað lýst því yfir opinberlega yfir að þessi staðfasta afstaða Gunnars til rangs sakburðar sé sérstök sönnun um sekt hans en ekki sakleysi.

„Umbjóðandi minn lýsir sig hins vegar sekan um þann barnaskap að hafa trúað því eitt augnablik í hita leiksins að réttlætið myndi sigra og Nýja Ísland rísa. Nú veit hann betur,“ segir í tilkynningu.

Gunnar mun á næstu dögum birta opinberlega sína heildstæðu sýn á þetta dæmalausa mál, skrifar Skúli. „Samskiptum hans við stjórn FME er hins vegar formlega lokið. Lyktir málsins munu ráðast fyrir dómstólum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert