Er enn í lífshættu

Ráðist var á mann á lögmannsstofu við Lágmúla á mánudag
Ráðist var á mann á lögmannsstofu við Lágmúla á mánudag mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Karlmaður á sextugsaldri er enn í lífshættu eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás á lögmannsstofu síðastliðinn mánudag. Að sögn læknis á gjörgæsludeild er ástand mannsins óbreytt og er honum haldið sofandi í öndunarvél.

Árásarmaðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til á morgun að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur játað verknaðinn og verður gert að sæta geðrannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert