Liggur enn á gjörgæslu

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður á sextugsaldri liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás á lögmannsstofu síðastliðinn mánudag. Að sögn læknis á gjörgæsludeild er ástand mannsins óbreytt og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Hann er enn í lífshættu.

Maðurinn var fluttur á sjúkrahús með mikla stunguáverka.

Árásarmaðurinn var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. apríl næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur játað verknaðinn og verður gert að sæta geðrannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert