Þór og Margrét biðjast afsökunar

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar,
Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, mbl.is/Ómar Óskarsson

Þingmenn Hreyfingarinnar, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, hafa beðist afsökunar á skrifum sínum um ofbeldisverk í þjóðfélaginu.

„Vegna þeirrar óvægnu umræðu sem skapast hefur í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar á starfsmann lögmannsstofu í Lágmúla fyrr í vikunni viljum við ítreka að ofbeldi er aldrei réttlætanlegt og að við fordæmum það í öllum birtingarmyndum þess. Hafi orð okkar í því sambandi verið særandi eða meiðandi á einhvern hátt fyrir þá sem nú eiga um sárt að binda viljum við biðjast afsökunar á því. Það var aldrei ætlunin,“ segir í yfirlýsingu frá þingmönnum Hreyfingarinnar.

Grein Margrétar Tryggvadóttur

Grein Þórs Saari

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert