Rólegt hjá lögreglunni

Víðast hvar á landinu hefur verið rólegt hjá lögreglunni um helgina og sérstaklega í dag. Þó var einn maður tekinn fyrir að keyra undir áhrifum fíkniefna á Akranesi í morgunsárið.

Að sögn lögreglunnar er svipaður fjöldi ökumanna tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og í fyrra en brot af þessu tagi eru orðin sýnilegri en áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert