Spáir 15 stiga frosti

Veðurstofan spáir talsverðu frosti víða um land í nótt, en spáð er allt að 15 stiga frosti í innsveitum. Kuldanum fylgir suðaustan hvassviðri með snjókomu eða slyddu síðdegis á morgun.

Á höfuðborgarsvæðinu gengur í suðaustan 10-18 með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu á morgun. Frost verður 0 til 5 stig, en frostlaust eftir hádegi á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert