Lagið heitir Never Forget

Greta Salóme og Jónsi gefa eiginhandaráritanir.
Greta Salóme og Jónsi gefa eiginhandaráritanir. mbl.is/Sigurgeir S.

Myndband við framlag Íslendinga í Evróvisjón var frumsýnt kl. 12 í verslun Vodafone í Skútuvogi. Tökur, klipping og eftirvinnsla á tónlistarmyndbandinu við evróvisjónlagið „Mundu eftir mér“, með Grétu Salóme og Jónsa, fóru fram í síðustu viku.

Greta og Jónsi gáfu viðstöddum eiginhandaráritanir. Lagið er flutt á ensku í myndbandinu. Það heitir Never Forget í enskri útgáfu.

Myndbandið má sjá á vef Vodafone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert