Sprenging í miðbæ: Tveir í haldi

Manns sem leitað er í tengslum við sprenginguna í skartgripaversluninni …
Manns sem leitað er í tengslum við sprenginguna í skartgripaversluninni í gærmorgun. Af vef lögreglunnar.

Tveir karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir, sem eru báðir innan við tvítugt, voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sprengju sem sprakk á rúðu skargripaverslunarinnar GÞ skargripa í Bankastræti í miðborg Reykjavíkur og ráni í matvöruverslun í austurborginni.

Sprengjan sprakk á fimmta tímanum í gærmorgun og ránið var framið liðlega klukkutíma síðar en málin tengjast. Þriðja mannsins er jafnframt leitað í tengslum við þessa rannsókn lögreglunnar en myndir af honum má sjá hér á síðunni. Lögrelgan hvetur manninn til að gefa sig fram.

Þeir sem vita hvar maðurinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Sprengjan sem límd var á rúðu skargripaverslunarinnar var heimatilbúin en ætlun þeirra sem að henni stóðu var að brjóta sér leið inn í verslunina. Það er mat lögreglu að með sprengjunni kunni hinir sömu að hafa skapað almannahættu. Í ráninu í matvöruversluninni var starfsmanni hennar ógnað með sprautunál en ræningjarnir komust þá undan með fjármuni.

Gluggi verslunarinnar í Bankastræti sem reynt var að sprengja í …
Gluggi verslunarinnar í Bankastræti sem reynt var að sprengja í gærmorgun. mbl.is/Sigurgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert