Búið að opna Ólafsfjarðarveg

mbl.is/Hjörtur

Ólafsfjarðarvegur hefur verið opnaður að nýju samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni en veginum var lokað tímabundið í dag í kjölfar áreksturs flutningabifreiðar og sendibifreiðar.

Slysið átti sér stað við Krossa skammt sunnan Dalvíkur. Einn maður var í hvorum bíl og voru þeir fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri. Nokkurn tíma tók að ná öðrum manninum úr bíl sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert