Barn flutt með þyrlu úr Flatey

mbl.is

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, var kölluð út kl. 13:48 í dag eftir að barn varð fyrir óhappi í Flatey á Breiðafirði. Barnið mun hafa dottið og slasast á öxl.

Þyrlan lagði af stað frá Reykjavík kl. 14:22 og flogið beint í Flatey þar sem lent var kl. 15:30. Sjúklingur var þá fluttur um borð í þyrluna og farið að nýju í loftið stundarfjórðungi síðar.   Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 16:29 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti sjúkling ásamt aðstandanda á Landspítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert