Hálkublettir á nokkrum leiðum

Víða er orðið autt á landinu en þó eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum á Austurlandi og Vestfjörðum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði en um austanvert landið eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum.

Snjóþekja er svo á Vatnsskarði eystra. Ófært er um Hellisheiði eystri og Mjóafjarðarheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert