Rafmagn er nú komið á hjá öllum þeim notendum á Vesturlandi sem urðu fyrir rafmagnsleysi fyrr í dag. Fram kemur í tilkynningu að vinnuflokkur Rarik í Borgarnesi hafi lokið við viðgerð á háspennustreng í Melasveit um klukkan hálfátta í kvöld.
Fram kemur að strengurinn hafði skemmst í sinubruna.