Agnes næsti biskup Íslands

Agnes M. Sigurðardóttir er næsti biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir er næsti biskup Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Agnes M. Sigurðardóttir verður næsti biskup Íslands en talningu lauk rétt áðan. 502 voru á kjörskrá en 477 greiddu atkvæði. Agnes hlaut 307 atkvæðanna, rúm 64%, en Sigurður Árni Þórðarson 152 atkvæði. Auðir og ógildir kjörseðlar voru 18.

Fráfarandi biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, mun vígja Agnesi í embætti þann 24. júní nk. og mun hún formlega taka við því 1. júlí.

Viðtal verður við Agnesi á mbl.is Sjónvarp síðar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert