Náttúran fær kuðunginn

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Náttúrunni.is í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum. Við sama tækifæru voru nemendur í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og Foldaskóla í Grafarvogi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina í dag opnaði umhverfisráðherra einnig nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, segir í fréttatilkynningu.

Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur Náttúrunnar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

Þá  opnaði ráðherra í dag nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi  nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangsflokkum til endurvinnslu.

Eigendur Náttúrunnar.is eru Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson.

Nemendur í 7. og 8. bekk Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins árið 2012 fyrir vinnu sína að umhverfisþingi skólans. Síðastliðin þrjú ár hafa nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla staðið fyrir umhverfisþingi og eru allir í skólasamfélagi skólans og nærsveitum boðnir þangað velkomnir. Á hverju þingi fyrir sig hafa einhver brýn málefni í umhverfismálum og málefnum sjálfbærrar þróunar í sveitarfélaginu verið tekin fyrir og utanaðkomandi sérfræðingar fengnir til þess að vera með framsögu.

Á þinginu í ár kynntu nemendur í 7. og 8. bekk rannsóknarniðurstöður sínar á sorpflokkun á heimilum í skólasamfélaginu. Verkefnið kalla þauErt þú í rusli? Er rusl hráefni eða úrgangur?Um er að ræða könnun sem nemendurnir lögðu fyrir 114 heimili í skólasamfélaginu og fengu þeir svör frá um 96% heimilanna. Niðurstöðurnar settu nemendurnir fram í bæklingi ásamt leiðbeiningum þess efnis hvernig best sé að bera sig að við flokkun á sorpi í skólasamfélaginu. Bæklingurinn verður aðgengilegur á heimasíðu skólans en jafnframt verður honum dreift á hvert heimili í umdæmi skólans.

Nemendur Foldaskóla í Grafarvogi hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins árið 2012 fyrir þátttöku sína í Norræna loftslagsdeginum árið 2010. Í tilefni dagsins ákváðu nemendur skólans að virkja nærsamfélag sitt til þátttöku í þágu loftslagsmála og búa til eitt stórt tré í skólanum til þess að minna á mikilvægi trjánna, m.a. í loftslagsmálum. Verkefnið fólst í því að nemendur dreifðu í hús upplýsingum um mikilvægi þess að hver og einn gerði sitt til þess að sporna við óheillaþróun í loftslagsmálum.

Allir nemendur lituðu laufblað sem fylgdi með og átti viðtakandi þess svo að gera sér ferð með það í skólann og laufga með því grein á trénu sem kallaðistVirðing. Var það undir hverjum og einum komið að velja laufblaði sínu stað þar sem þótti viðeigandi. Heilu fjölskyldurnar komu saman í skólann og ræddu vel og lengi um hvaða grein ætti að verða fyrir valinu.Virðingin laufgaðist hægt og bítandi, enda gerast góðir hlutir hægt, segir enn fremur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert