16 ára í vímu undir stýri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl á Stekkjarbakka í Reykjavík laust fyrir klukkan fjögur í nótt. Reyndist ökumaðurinn vera 16 ára gamall og því réttindalaus og hann er einnig  grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Lögreglan segir að foreldrum ökumannsins hafi verið gert viðvart en honum var sleppt eftir yfirheyrslur og sýnatöku. Farþegi í bílnum, 18 ára stúlka, reyndist umráðamaður bílsins. Segir lögregla að hún verði kærð fyrir að fela próflausum akstur bifreiðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert