Frumvörpin illa undirbúin og stórgölluð

Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem sjávarútvegsráðuneytið setur fram í umsögn sinni í gær um skýrslu fyrirtækisins sem send var til atvinnuveganefndar 23. apríl síðastliðinn. Jafnframt harmar fyrirtækið þá aðför sem sjávarútvegsráðherra hefur gert að Deloitte á fundum og opinberum vettvangi í tengslum við sjávarútvegsfrumvörpin. Deloitte telur að frumvörpin um stjórn fiskveiða sem nú liggja fyrir Alþingi séu illa undirbúin og stórgölluð.

„Starfsemi Deloitte byggist á trausti og áreiðanleika enda óhæði grundvallarþáttur í starfsemi Deloitte. Við fögnum faglegri umræðu og gagnrýni á okkar vinnu en vísum öllum dylgjum um vafasöm vinnubrögð á bug líkt og ráðuneytið hefur haldið fram í umsögn sinni um skýrslu Deloitte,“ segir í yfirlýsingu frá Deloitte.

Helsta gagnrýni ráðuneytisins hefur verið á forsendur Deloitte í útreikningum um afgerandi stærðir líkt og fjárfestingar og fjármagnskostnað.

„Ágreiningur um fjárfestingar snýst um hvort byggja eigi á gömlum óverðleiðréttum fjárhæðum frá því fyrir hrun eða raunfjárfestingarþörf sjávarútvegsins miðað við núverandi verðlag og gengi eins og Deloitte styðst við. Til einföldunar má benda á að ekki er hægt að kaupa nýjan fjölskyldubíll í dag á sama verði og fyrir hrun.

Í skýrslu okkar kemur skýrt fram að vaxtaálag íslenskra banka hefur hækkað undanfarin ár og gera má ráð fyrir að vextir muni hækka. Fiskveiðistjórnunarkerfið á að gilda í áratugi og því gangi ekki að miða við stöðu vaxta á þeim tíma í fortíðinni þegar vextir og vaxtaálag voru í sögulegu lágmarki.

Deloitte telur að frumvörpin um stjórn fiskveiða sem nú liggja fyrir Alþingi séu illa undirbúin og stórgölluð. Þetta staðfestir umsögn óháðs sérfræðihóps sem tilnefndur var af atvinnuveganefnd. Kemst hann m.a. að þeirri niðurstöðu að í ljósi þeirra fjölmörgu ágalla sem á frumvarpinu eru, sé niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir og verulegra breytinga sé þörf á aðferðafræði frumvarpsins,“ segir í yfirlýsingunni.

Deloitte mun senda inn síðar í dag umsögn til atvinnuveganefndar Alþingis þar sem gagnrýni og ávirðingum ráðuneytisins verður svarað með ítarlegum hætti. Jafnframt verður fjölmiðlum sent afrit af þeirri umsögn.“  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert