Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
Frá aðalmeðferð í málinu. mbl.is/Una

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins.

Agné var dæmd fyrir að hafa fætt fullburða lifandi sveinbarn á einu baðherbergi Hótel Fróns, veitt drengnum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar.

Sækjandi í málinu fór fram á 16 ára fangelsi, sem er hámarksrefsing fyrir manndráp. Taldi hann skilyrði ekki fyrir hendi til að beita refsimildandi úrræðum.

Fjölskipaður héraðsdómur hafnaði aðalkröfu sækjanda um að dæma Agné samkvæmt 211. grein almennra hegningarlaga sem hljóðar svo: „Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt.“

Í rugluðu hugarástandi

Dómurinn féllst hins vegar á varakröfu sækjanda, að 212. grein ætti við. Hún hljóðar svo: „Ef móðir deyðir barn sitt í fæðingunni eða undir eins og það er fætt, og ætla má, að hún hafi gert það vegna neyðar, ótta um hneisu eða sökum veiklaðs eða ruglaðs hugarástands, sem hún hefur komist í við fæðinguna, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum.“

Á vefsvæði Hæstaréttar má sjá að ríkissaksóknari hefur áfrýjað þessari niðurstöðu héraðsdóms og hyggst láta reyna á aðalkröfu sína fyrir Hæstarétti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert