Féllu 40 metra niður í fjöruna

Séð frá brún Dyrhólaeyjar niður í fjöruna.
Séð frá brún Dyrhólaeyjar niður í fjöruna. mbl.is/Rax

Aðgerðum á slysstað í Dyrhólaey er að ljúka. Upplýsingar af slysstað hafa verið á reiki en komið hefur í ljós að tveir erlendir ferðamenn féllu þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig. Við það varð til skriða sem tók ferðafólkið með sér niður í fjöruna fyrir neðan.

Björgunarsveitafólk á staðnum áætlar að fallið hafi verið um 40 metrar. Skriðan sem fór af stað er um 100 metra breið. Björgunarlið komst að fólkinu á landi og reyndist því ekki þörf á að síga til þess eins og fyrst var talið.

Ekki er vitað um meiðsli fólksins en verið er að setja það um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem mun fljúga með það á sjúkrahús í Reykjavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert