Kannast ekki við fund með Füle

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Friðrik Tryggvason

„Ég kannast ekki við að Štefan Füle fundi með utanríkismálanefnd Alþingis... og þó á ég sæti í þeirri ágætu nefnd,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í kvöld.

Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag verður Štefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, staddur hér á landi á morgun fimmtudag og á föstudaginn en fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdastjórn sambandsins að í heimsókninni muni Füle meðal annars ræða við utanríkismálanefnd Alþingis.

Eins og áður segir kannast Ragnheiður Elín, sem sæti á í nefndinni, hins vegar ekki við að slíkur fundur hafi verið boðaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert