Jóhanna á leiðtogafundi í Þýskalandi

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir. mbl.is

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins sem lauk í dag í Stralsund í Þýskalandi.  

Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlandaþjóðirnar fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu.

Forsætisráðherrarnir ræddu annars vegar um orkumál og orkuöryggi á svæðinu, en hins vegar um áhrif lýðfræðilegra breytinga í ríkjunum, þar sem meðalaldur fer hækkandi og sífellt stærri hluti þjóðanna nær lífeyrisaldri, jafnframt því sem barneignum fækkar, segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 

Þýskaland lætur nú af formennsku og tekur Rússland við formennskunni næsta árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert