SGS mótmælir aðgerðum LÍÚ harðlega

Togarar við bryggju í Reykjavík. Ekki er útlit fyrir að …
Togarar við bryggju í Reykjavík. Ekki er útlit fyrir að landfestar verði leystar fyrr en eftir viku. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsgreinasamband Íslands mótmælir harðlega aðgerðum LÍÚ um að hvetja sína félagsmenn til þess að halda fiskiskipaflotanum í landi um óákveðinn tíma til að knýja á um viðræður við stjórnvöld um frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Í huga SGS er um ólögmætar aðgerðir að ræða þar sem þær fela í sér brot á 17. gr. laga nr. 80/1983 um stéttarfélög og vinnudeilur.  

Það er mikil hætta á því að þessar aðgerðir LÍÚ muni koma illa við landverkafólk, en tilbúinn hráefnisskortur mun leiða til vinnslustöðvunar,“ segir í frétt á vef Starfsgreinasambandsins. „Nú þegar eru þessar aðgerðir farnar að hafa áhrif á vinnslu í nokkrum fyrirtækjum og er óljóst hvort fiskvinnslufólk muni verða fyrir tekjuskerðingu. LÍÚ hefur upplýst að starfsfólk verði tryggt laun samkvæmt kjarasamningum á meðan á aðgerðum stendur, en það er rétt að minna á að tekjur fiskvinnslufólks eru samsettar af grunnlaunum annars vegar og bónusgreiðslum hins vegar. Eins og staðan er núna er aldeilis óvíst hvort fiskvinnslufyrirtæki muni greiða öll laun á meðan á þessum aðgerðum stendur.“

Starfsgreinasambandið mun fylgjast grannt með áhrifum þessara aðgerða og meta hvort þær muni þýða tekjutap fyrir félagsmenn. SGS í samvinnu við ASÍ áskilur sér rétt til málshöfðunar til heimtu skaðabóta og sekta ef þessar aðgerðir munu hafa áhrif á tekjur okkar félagsmanna.

Í umsögn SGS um frumvörp til laga um fiskveiðistjórnun og veiðigjald var lýst yfir ákveðnum áhyggjum um að fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda gætu haft neikvæð áhrif á kjör og starfsöryggi landverkafólks. Á hinn bóginn telur Starfsgreinasambandið það með öllu óviðunandi að LÍÚ ráðist í pólitískar aðgerðir sem bitni á umbjóðendum. 

Samkvæmt upplýsingum frá Starfsgreinasambandinu nú fyrir skömmu kom fram að áhyggjur beindust að því að útgerðarfyrirtækin sem reka fiskvinnslur myndu ekki greiða bónusgreiðslur ofan á grunnlaunin. Eins er dæmi um að sumarstarfsmenn hafi öðlast fast ráðningarsamband og þar með ekki svokallaða kauptryggingu sem tryggir viðkomandi laun í hráefnisskorti. Óvitað er þó hvort þeir fái laun eigi að síður, eins og útvegsmenn hafa sagt að verði gert þrátt fyrir veiðistöðvun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert