Stjörnufræði, kynjafræði og kínverska á stundatöflunni

Ríflega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 12-16 ára settust í morgun á skólabekk í Háskóla unga fólksins sem starfræktur verður í Háskóla Íslands í þessari viku. Þar munu nemendur sækja fjölbreytt námskeið sem spanna hinar ólíku greinar sem kenndar eru við Háskóla Íslands.

Háskóli unga fólksins er nú starfræktur í níunda sinn og hefur frá upphafi verið árviss sumarboði við Háskóla Íslands. Nemendahópurinn í ár er afar fjölbreyttur og kemur alls staðar af landinu. Þá eru í hópi nemenda verðlaunahafar í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2011 en meðal verðlauna í keppninni var boðskort í Háskóla unga fólksins.

Nemendur hafa sjálfir búið til sínar stundatöflur. Alls stóð þeim til boða á fimmta tug námskeiða, þar á meðal námskeið í stjörnufræði, heimspeki, fornleifafræði, lögfræði, frumkvöðlafræði, kínversku og kynjafræði auk lyfjafræði. Kennsla í Háskóla unga fólksins er í höndum fræðimanna og framhaldsnema við Háskóla Íslands.

Auk námskeiða í einstökum greinum hafa nemendur valið sér eina námsgrein á svokölluðum þemadegi miðvikudaginn 13. júní. Þá verja nemendur heilum degi í verkefni í greinum eins og fjölmiðlafræði, jarðvísindum, kvikmyndum, tölvunarfræði, viðskiptafræði og jafnrétti, lýðræði og stjórnmálum ásamt því að heimsækja stofnanir sem tengjast greinunum. Þannig munu nemendur í þemanu jafnrétti, lýðræði og stjórnmál heimsækja Jón Gnarr borgarstjóra í Ráðhús Reykjavíkur og fræðast um störf hans auk þess sem þingkonur taka á móti hópnum í Alþingishúsinu.

Botninn verður sleginn í Háskóla unga fólksins á veglegri lokahátíð föstudaginn 15. júní. Efnt verður til veislu á Háskólatorgi og nemendur, starfsfólk og kennarar fagna saman góðri viku.

Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur í júnímánuði allt frá árinu 2004 og óhætt er að segja að það lifni yfir háskólasvæðinu þegar fróðleiksfúsir og fjörugir krakkar leggja það undir sig. Skólinn hefur einnig ferðast um landið sem hluti af Háskólalestinni. Í fyrra heimsótti Háskólalestin átta áfangastaði víða um Ísland og fjórir staðir voru heimsóttir í maí síðastliðnum.

Nemendur í Háskóla unga fólksins.
Nemendur í Háskóla unga fólksins. mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert