Engin ákvörðun um þyrluflug

Þyrla Landhelgisgæslunnar við leitina að hvítabirninum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar við leitina að hvítabirninum. mynd/Róbert Jack

Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um hvort þyrla Landhelgisgæslu Íslands, TF-LIF, verður send í að svipast um eftir hvítabirni sem erlendir ferðamenn töldu sig hafa séð við Húnaflóa.

Þær upplýsingar fengust frá stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands í morgun að ekkert þyrluflug væri skráð fyrir daginn í dag.

Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, sagði í samtali við mbl.is að fremur þungbúið væri á svæðinu og því hafa aðstæður til leitar breyst talsvert frá því í gær en þá var skyggni mjög gott.

„Við reynum a.m.k. að fljúga eitthvað um helgina. Hvort sem það verður í dag, á morgun eða mánudag skiptir svo sem ekki öllu,“ sagði Kristján.

Í gær leitaði áhöfn þyrlu Gæslunnar að hvítabirni á nokkuð stóru svæði en án árangurs. Leitað var meðfram ströndinni frá Skaga, á Vatnsnesi og Heggstaðanesi en einnig á Ströndum vestan Húnaflóa.

Það eina sem fannst var öldumælisdufl sem hafði slitnað upp fyrir nokkru en það hafði rekið frá Straumnesi fyrir Horn og inn á Strandir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert