Skattadagur SUS í dag

Útgjöld heimilanna, samkvæmt SUS.
Útgjöld heimilanna, samkvæmt SUS. SUS

Skattadagur Sambands ungra sjálfstæðismanna er í dag en þann dag hætta Íslendingar að vinna fyrir hið opinbera og byrja að vinna fyrir sig sjálfa, segir í tilkynningu frá SUS.

Almenningur er nú meirihluta ársins (190 daga) að vinna fyrir hið opinbera, eða frá 1. janúar til og með 8. júlí. Um 52% útgjalda heimilanna eru skattar og opinber gjöld.

„Þessu verður að breyta. Ríkið og sveitarfélög þurfa að sýna meiri ráðdeild og spara í rekstri sínum. Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) hefur sýnt fram á að ríkið geti sparað um 72 milljarða króna, án þess að draga úr útgjöldum til velferðar- eða menntamála. Auk þess þarf að einfalda skattkerfið til muna, fækka sköttum og undanþágum, svo að það skili betur hlutverki sínu, þ.e.a.s. að afla ríkinu tekna.

SUS hvetur skattgreiðendur til að hugleiða á þessum degi hvort þessir gríðarlega háu skattar, sem þeir greiða, skili sér nægjanlega vel í þau verkefni sem eru nauðsynleg og þurfa á skattpeningum að halda,“ segir í fréttatilkynningu frá SUS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert