Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra

Umhverfisverðlaunahafar 2012 ásamt hluta nefndarmanna úr samgöngu-, umhverfis- og hálendisnefnd …
Umhverfisverðlaunahafar 2012 ásamt hluta nefndarmanna úr samgöngu-, umhverfis- og hálendisnefnd Rangárþings ytra. mbl.is/Ingvar

Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra voru veitt í gær við hátíðlega athöfn á Hellu. Það er samgöngu-, umhverfis- og hálendisnefnd Rangárþings ytra sem veitir verðlaunin árlega og eru þau veitt í fjórum flokkum.

Að þessu sinni voru það Theresa Lisbeth Sundberg og Kristinn Scheving á Ártúni 6 á Hellu sem fengu umhverfisverðlaun 2012 fyrir fallegan garð í þéttbýli.

Umhverfisverðlaun fyrir snyrtilegt lögbýli, þar sem stundaður er landbúnaður, fengu ábúendur á Selsundi á Rangárvöllum, Sverrir Haraldsson, Guðmundur Gíslason og Björk Rúnarsdóttir.

Umhverfisverðlaun fyrir fallega lóð í dreifbýli og fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis fengu ábúendur á Stokkalæk á Rangárvöllum, Inga Ásta Hafstein og Pétur Kr. Hafstein, og Selið, sem þau hjón reka á Stokkalæk.

Viðkomandi umhverfisverðlaunahafar munu á næstu dögum vera með opið fyrir gesti part úr degi þar sem fólki gefst kostur á að bera þessar snyrtilegu og fallegu lóðir augum.

Theresa Lisbeth Sundberg tekur við viðurkenningarskjali og trjáplöntun í tilefni …
Theresa Lisbeth Sundberg tekur við viðurkenningarskjali og trjáplöntun í tilefni útnefningarinnar. mbl.is/Ingvar
Björk Rúnarsdóttir ásamt börnum sínum tekur við viðurkenningarskjali og trjáplöntun …
Björk Rúnarsdóttir ásamt börnum sínum tekur við viðurkenningarskjali og trjáplöntun í tilefni útnefningarinnar. mbl.is/Ingvar
Inga Ásta og Pétur Hafstein taka við viðurkenningarskjali og trjáplöntun …
Inga Ásta og Pétur Hafstein taka við viðurkenningarskjali og trjáplöntun í tilefni útnefningarinnar. mbl.is/Ingvar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert