Einkahúmor sem gekk of langt

Te & Kaffi lenti í þeirri bitru reynslu á dögunum …
Te & Kaffi lenti í þeirri bitru reynslu á dögunum að heldur óheppileg skilaboð lentu utan á pakkningum söluvöru þeirra. mbl.is Mynd af Flickmylife.com

„Þetta er skelfilegt. Þetta er einkahúmor hjá strákunum uppi í framleiðslu sem gekk of langt. Þeir hafa sett þetta á límmiðana í prófarkalestrinum og svo gleymt að taka þetta af,“ segir Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kaffihúsa Tes & Kaffis.

Te & Kaffi lenti í þeirri bitru reynslu á dögunum að heldur óheppileg skilaboð lentu utan á pakkningum söluvöru þeirra, en utan á einum kaffipakkanum stendur meðal annars: „Ef þú vilt láta taka þig í ra****** hringdu þá í Gumma B“. 

Halldóri er ekki skemmt yfir þessum skilaboðum og segir fyrirtækið taka þetta mjög alvarlega. „Þetta er náttúrlega algjört hugsunarleysi. Þetta var sett út í nokkra daga og um leið og við uppgötvuðum mistökin tókum við varninginn úr umferð og settum nýjar vörur í staðinn,“ segir Halldór.

Halldór segist ekki vita hverjir nákvæmlega eru ábyrgir fyrir mistökunum og vildi ekki aðspurður segja hvort þeim mönnum verði vikið úr starfi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert