Of langt gengið í niðurskurði

Lögreglustjórinn Stefán Eiríksson.
Lögreglustjórinn Stefán Eiríksson. mbl.is/Ómar

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að allt of langt hafi verið gengið í niðurskurði til löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að vel hafi gengið við fækkun afbrota sé ljóst að fækkun starfsmanna hafi haft veruleg áhrif á ýmsa þætti og málshraði í málum sem ekki teljist til brýnustu forgangsmála sé óviðunandi.

Stefán segir að þingmenn og aðrir ráðamenn láti oft í sér heyra um málefni lögreglunnar og segist hann skynja í þeim orðum skilning á stöðu lögreglunnar. „Sá skilningur þarf að vera bæði í orði og á borði.“

Þetta kemur fram í ársskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2011.

Hann segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi frá stofnun starfað á grunni skýrra markmiða og lagt áherslu á nokkur lykilatriði í sínum störfum til að tryggja sem best að þeim markmiðum verði náð. Þetta hafi að miklu leyti gengið vel eins og sjáist í skýrslunni, á fyrirliggjandi tölum um fækkun afbrota og því mikla trausti sem almenningur beri til lögreglunnar og hennar starfa.

Þessi árangur sé fyrst og fremst verk samhents starfsfólks og stjórnenda, sem leggi sig fram um það dag og nótt að sinna störfum sínum af metnaði og heiðarleika.

Ekkert annað en afrek

„Þessi góði árangur er ekki síst áhugaverður í ljós þess mikla niðurskurðar sem embættið hefur staðið frammi fyrir á undanförnum árum. Niðurskurðarkröfunni hefur verið mætt með margvíslegum hætti, starfsfólki hefur fækkað verulega, breytingar hafa verið gerðar á skipulagi og vaktakerfum, verkefnum hefur verið hætt og allra leiða leitað til að hagræða og spara í rekstri svo fátt eitt sé nefnt. Gætt hefur verið að því að þessar aðgerðir hafi sem minnst áhrif á möguleika lögreglunnar til að sinna grunnþjónustu og bráðatilvikum. Með hliðsjón af öllu þessu er ekki hægt að lýsa þeim árangri sem starfsfólk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur náð á undanförnum árum öðruvísi en svo að kalla það afrek,“ segir Stefán.


„Að mati undirritaðs hefur allt of langt verið gengið í niðurskurði til löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að vel hafi gengið við fækkun afbrota þá er ljóst að fækkun starfsmanna hefur haft veruleg áhrif á ýmsa þætti og málshraði í málum sem ekki teljast til brýnustu forgangsmála er óviðunandi. Þá hefur öll stoðþjónusta innan embættisins liðið fyrir niðurskurðinn, sem á því sviði er í flestum tilvikum meiri en á beina löggæslustarfsemi. Áhrif þess eru neikvæð en koma hins vegar ekki fram strax,“ segir Stefán ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert