Búið að grafa rás við sinueldana

Frá sinueldinum í Laugardal við Ísafjarðardjúp í gærkvöldi.
Frá sinueldinum í Laugardal við Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. mbl.is

Búið er að grafa rás í landið á Hrafnabjörgum í Laugardal við Ísafjarðardjúp þar sem sinueldar hafa logað síðan á föstudag, en rásin á að koma í veg fyrir að eldurinn geti breiðst frekar út.

Heimildarmaður sem mbl.is ræddi við telur að eldar muni loga í jarðvegi á svæðinu í allt að viku í viðbót, en hann segir ólíklegt að það takist að ráða niðurlögum hans fyrr en hann slokknar af sjálfu sér. Til þess þurfi að dæla á svæðið hundruðum tonna af vatni á mínútu.

Um 20 slökkviliðsmenn eru á staðnum og verða 12 í nótt

Á staðnum eru núna um 20 slökkviliðsmenn frá slökkviliðum Hólmavíkur, Súðavíkur, Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur. Vaktaskipti verða á staðnum í kvöld og svo aftur í fyrramálið, en nú er unnið á staðnum allan sólarhringinn. Í nótt verða menn frá slökkviliðum Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar á staðnum, en hin liðin hvíla sig til morguns. Það munu því verða um 12 manns að störfum í nótt.

Rásin sem grafin var liggur frá Laugardalsá og upp á veginn inn í Laugardal, en enn er eitthvað af svæði innan rásar sem getur brunnið.

Það land sem er innan varnarrásar verður látið brenna

Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir að þegar búið verður að bleyta vel í þessu landi öllu verði eldurinn látinn laus og honum leyft að komast að bökkum rásarinnar sem grafin var. Vindur sé það sterkur á svæðinu að ekki verði annað hægt. Hann segir veðurspár hagstæðar um helgina og í nótt.

Kostnaður við málið hleypur á milljónum króna og segir Ómar að frá því á föstudag sé slökkvistarf þegar búið að kosta um fimm milljónir króna og enn sé ekki fyrirséð með kostnaðinn, enda fjöldi tækja og manns á staðnum í vinnu.

Stóð til að fá 20 tonna haugsugu frá Flúðum

Bóndinn á Látrum við Ísafjarðardjúp er mættur á svæðið með 12 tonna haugsugu og verður þar í kvöld að bleyta í jarðvegi. Ætlunin var að flytja 20 tonna haugsugu frá Flúðum í Hrunamannahreppi vestur í Djúp, en bilun kom upp svo það brást, en verður skoðað á morgun ef viðgerðir takast. Sú haugsuga hefur verið nýtt við slökkvistarf sinuelda á Suðurlandi við góða raun.

Allt í kringum Laugardal hefur rignt í dag, en þar hefur einungis komið smáúði. Þó er ekki talið að úr þessu muni rigning hafa mikil áhrif á eldana og var því lýst af einum heimildarmanni sem svo að „það væri eins og að kasta vatni á gæs“.

Frétt mbl.is - Reyna allt til þess að slökkva eldinn

Sviðin jörð eftir sinueldinn.
Sviðin jörð eftir sinueldinn. Ljósmynd/Ómar Már Jónsson
Barist hefur verið við sinueldinn síðan hann kom fyrst upp …
Barist hefur verið við sinueldinn síðan hann kom fyrst upp á föstudag. mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
12 tonna haugsuga hefur verið nýtt til slökkvistarf.
12 tonna haugsuga hefur verið nýtt til slökkvistarf. mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fjögur slökkvilið eru að störfum á vettvangi, frá Hólmavík, Súðavík, …
Fjögur slökkvilið eru að störfum á vettvangi, frá Hólmavík, Súðavík, Ísafirði og Bolungarvík. mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert