Enn skelfur undir Bláfjöllum

Skjálftasvæðið er merkt með dökkrauðum hring.
Skjálftasvæðið er merkt með dökkrauðum hring. Mynd/Veðurstofa Íslands

Viðvarandi skjálftavirkni hefur verið við Bláfjöll í gær og í dag. Flestir eru jarðskjálftarnir þó litlir, frá 0,5 stigum og upp í 1,8 stig.

Þannig mældist skjálfti upp á 1,7 fimm km NA af Bláfjallaskála kl. 11.19 í morgun, annar upp á 1,5 á sömu slóðum tíu mínútum síðar og annar sömu stærðar 11.40.

Skjálftarnir eru allir á svipuðu dýpi, 6 til 3,9 km dýpi.

Sem kunnugt er mældist skjálfti upp á 4,6 stig á svæðinu 30. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert