Gaskútur var í íbúðinni

Frá vettvangi sprengingarinnar í Ofanleiti í dag.
Frá vettvangi sprengingarinnar í Ofanleiti í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ljóst er að gaskútur var í íbúðinni í Ofanleiti í Reykjavík þar sem mikil sprenging varð í morgun. Slökkviliðsmenn fjarlægðu kútinn fyrr í dag en samkvæmt heimildum mbl.is var hann ósprunginn.

Ekki liggur fyrir að öðru leyti hvaða hlutverk gaskúturinn kann að hafa leikið í sprengingunni. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að hugsanlega hefðu fleiri kútar verið í íbúðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert