Kveiktu í strætóskýli

Íbúum tókst að slökkva eld sem kom upp í strætóskýli …
Íbúum tókst að slökkva eld sem kom upp í strætóskýli við Kirkjuvelli í Hafnarfirði í dag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Eldur var borinn að strætóskýli við Kirkjuvelli í Hafnarfirði í dag um hálf fjögurleytið. Nokkrar skemmdir hlutust af brunanum, en íbúar og hugrakkir strætófarþegar náðu í sameiningu að slökkva eldinn áður en slökkvilið Reykjavíkur kom á staðinn, Að sögn vakthafandi slökkviliðsmanns hjá slökkviliði Reykjavíkur er ekki vitað hverjir voru að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert