Birkir Jón hættir á þingi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birkir Jón Jónsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birkir Jón Jónsson. mbl.is/Árni Sæberg

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir þetta kjörtímabil af persónulegum ástæðum og muni ekki sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður Framsóknarflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, sækist nú eftir efsta sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi en Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í kjördæminu, lýsti því yfir í vikunni að hann sæktist eftir því sæti. Sigmundur Davíð situr nú á Alþingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður.

Þetta kemur fram í yfirlýsingum, sem þeir Birkir Jón og Sigmundur Davíð sendu frá sér í dag. Þær eru eftirfarandi:

Yfirlýsing frá Birki Jóni Jónssyni:

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi þingsetu eftir þetta kjörtímabil af persónulegum ástæðum og mun ekki sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður Framsóknarflokksins. Ég hef á sl. 15 árum helgað líf mitt stjórnmálum og á þessum tímapunkti hef ég ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum. Ég vil þakka framsóknarfólki um allt land frábært samstarf síðustu ár og er ákaflega þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt sem varaformanni Framsóknarflokksins og oddvita í Norðausturkjördæmi. Undanfarnar vikur hef ég hvatt Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins, til að bjóða sig fram í kjördæminu. Um leið og ég þakka Sigmundi gott og árangursríkt samstarf fagna ég því að hann skuli vilja bjóða fram krafta sína.

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins.

Yfirlýsing frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni:

Um leið og ég þakka Birki Jóni fyrir gott og ánægjulegt samstarf undanfarin þrjú ár óska ég honum alls hins besta á þeirri braut sem hann hefur nú kosið. Samskipti okkar Birkis hafa frá upphafi verið frábær. Á sínum tíma, þegar ég hóf þátttöku í stjórnmálum, fyrir áeggjan fólks í Norðausturkjördæmi, bauðst Birkir Jón til þess að fyrra bragði að stíga til hliðar þegar hart var lagt að mér að bjóða mig fram fyrir kjördæmið. Ég afþakkaði það að sinni og lýsti því yfir að ég myndi byrja á því að bjóða mig fram í Reykjavík. En nú þegar Birkir Jón hverfur á braut hyggst ég sækjast eftir því að vera í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi og taka þátt í baráttunni fyrir því að flokkurinn endurheimti stöðu sína sem stærsti flokkur kjördæmisins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert