Mótmæla hækkun vörugjalda

Mjólkurvörur
Mjólkurvörur mbl.is/Gúna

Stjórn  Samtaka mjólkur-  og kjötvinnslufyrirtækja (SMK) mótmælir harðlega fyrirhugaðri  800 milljón króna hækkun á vörugjöldum á matvæli sem boðuð er í  fjárlagafrumvarpi  ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni.

„Vörugjöldin  eiga  að beinast að sykri  í  matvælum  og  eru  réttlætt  með vísan til manneldissjónarmiða og aðgerðum  gegn  offitu.  Litlar líkur eru á að hækkun vörugjalda á sykraðar vörur  hafi  áhrif  á  heilsu- eða holdafar landsmanna.

Hækkun vörugjalda á matvæli um 800 milljónir á ári skerðir hins vegar kjör landsmanna á tvennan hátt,  annars vegar með hærra vöruverði og hins vegar aukinni verðbólgu sem leiðir  til hærri greiðslubyrði af lánum. Stjórn SMK skorar á stjórnvöld að draga hugmyndir um hækkun vörugjalda á matvæli til baka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert