Brospinnar til styrktar geðdeildum

Hinir glaðlegu Brospinnar verða seldir víða um helgina  til styrktar bættum aðbúnaði á geðdeildum Landspítalans, sem alls eru þrettán talsins.

Einar Már Guðmundsson, rithöfundur og höfundar bókarinnar Englar alheimsins, sem byggist að hluta á ævi bróður hans, er verndari söfnunarinnar í ár, tók á móti fyrsta Brospinnanum úr hendi Sylviane Lecoultre, formanns Brospinna – Áhugahóps um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítalans.

Brospinninn er framtak starfsfólks geðsviðs Landspítalans sem mun sjálft selja hann til styrktar skjólstæðingum sínum á sölustöðum víða á höfuðborgarsvæðinu en hann er einnig í netsölu.

„Hugmyndin að Brospinnanum var að gleðja og er að gleðja. Fyrir þremur árum var starfsmaður á geðdeild að reyna að létta lund sjúklings sem átti erfitt og teiknaði, klippti og límdi broskarl á tunguspaða sem hann notaði sem pinna og skildi eftir á náttborði sjúklingsins.

Þannig kviknaði hugmyndin að Brospinnanum og stofnað var félagið Brospinnar – Áhugahópur um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítalans. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt og með því að veifa Brospinnanum framan í heiminn er ekki ólíklegt að heimurinn brosi til þín – um leið og þú styrkir þarft málefni,“ segir í fréttatilkynningu frá áhugahópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert