Bjarni Siguróli matreiðslumaður ársins

F.v. Garðar Kári Garðarsson, Bjarni Siguróli Jakobsson og Hafsteinn Ólafsson.
F.v. Garðar Kári Garðarsson, Bjarni Siguróli Jakobsson og Hafsteinn Ólafsson.

Bjarni Siguróli Jakobsson frá Slippbarnum sigraði í dag í keppninni Matreiðslumaður ársins 2012.

Þetta kemur fram á vefnum freisting.is.  Á föstudaginn fór fram forkeppni um titilinn Matreiðslumaður ársins 2012 og komust fimm matreiðslumenn áfram í úrslitakeppnina sjálfa sem haldin var í dag í Hótel- og matvælaskólanum. 

Úrslit urðu þessi:

1. sæti - Bjarni Siguróli Jakobsson frá Slippbarnum
2. sæti - Hafsteinn Ólafsson frá Grillinu á Hótel Sögu
3. sæti - Garðar Kári Garðarsson frá Fiskfélaginu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert