Þörf á loftrýmiseftirliti umdeild

Steingrímur J. Sigfússon tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í …
Steingrímur J. Sigfússon tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í fjarveru Össurs Skarphéðinssonar Magnus Fröderberg/norden.org

„Ég fór yfir það og kom því til skila að þetta væri ekki heldur óumdeilt mál á Íslandi,“ segir Steingrímur J. Sigfússon um loftrýmisgæslu við Ísland sem var til umræðu á fundi norrænu utanríkisráðherranna í dag. Steingrímur hljóp í skarðið fyrir Össur Skarphéðinsson sem forfallaðist vegna veikinda.

Steingrímur segir að áherslan í umræðunni hafi öll verið á Finnlandi og Svíþjóð þar sem málið er viðkvæmt og umdeilt og langt í frá allir flokkar sem styðji það. Eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag staðfestu Svíþjóð og Finnland vilja sinn til þátttöku í loftrýmisgæslu við Ísland á árinu 2014.

„Ég sagði að við myndum ekki blanda okkur í það en hefðum fullan skilning á því að þessi ríki þyrftu að ræða málið og fá botn í það hjá sér og sínum þjóðþingum,“ segir Steingrímur en tillagan var sett fram í Stoltenbergskýrslunni frá árinu 2009 sem fjallar um hvernig Norðurlöndin geti aukið samvinnu og samlegð í utanríkis- og öryggismálum.

Steingrímur segist svo hafa komið því á framfæri að þó svo að þetta fyrirkomulag við loftrýmisgæslu væri við lýði á Íslandi sé hún ekki óumdeild og ekki allir sem sjái sömu þörf fyrir hana. „Þá sagði ég að við [í Vinstri grænum] værum í þeim hópi og að við hefðum þau sjónarmið uppi sem tengdust okkar grundvallarsjónarmiði til hernaðarbandalags og fleiri þátta og hvernig við litum á öryggishugtakið.“

Hann segir að það séu kannski fleiri þættir sem standi Íslandi nær í því samhengi, borgaralegir þættir á borð við almannavarnir, náttúrvá, umhverfisvá og borgarlegar öryggisaðgerðir. „Það var allt í góðu og engar orðahnippingar á milli okkar Carls [Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar]. Svo urðu reyndar nokkur orðaskipti um þetta í salnum undir skýrslu utanríkisráðherranna sem norski ráðherrann talaði fyrir. En það voru spurningar sem beindust að Svíþjóð og Finnlandi.“

Hann segir málið nokkuð flókið hjá þjóðunum tveimur og hvernig litið er á það út frá utanríkisstefnunni, þar sem þau standa bæði utan við Nato. „Það er lögð mikil áhersla á að það boði enga breytingu þó svo þeir athugi þessa loftrýmisgæslu.“

Steingrímur hljóp í skarðið fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sem forfallaðist vegna veikinda. Hann segir það alvanalegt þó ekki standi þeir í sama flokki. „Ég hljóp í skarðið, sinnti nokkrum verkefnum og fór á nokkra fundi af því að hann komst ekki. Það stóð þannig á, Jóhanna [Sigurðardóttir] var farin heim og ég hljóp í skarðið. Það er ekkert nýtt. Við gerum þetta nú oft ef þörf krefur á fundum erlendis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert