Rarik leggur 35 km jarðstreng

Óvarðir jarðstengir voru lagðir til bráðabirgða ofan jarðar í Mývatnssveit …
Óvarðir jarðstengir voru lagðir til bráðabirgða ofan jarðar í Mývatnssveit eftir óveðrið. mbl.is/RARIK

RARIK hefur lokið við að leggja 35 kílómetra af dreifikerfi sínu í Mývatnssveit í jarðstreng. Ákvörðun um framkvæmdina var tekin eftir að loftlínan fór illa í ísingarveðri í september.

Eftir að línan eyðilagðist var straumi komið á bæi sveitarinnar með streng sem lagður var til bráðabirgða ofanjarðar. Ákveðið var að endurnýja ekki loftlínuna enda var á dagskrá RARIK að endurnýja hana með jarðstreng á næstu átta árum.

Óveðrið flýtti þessari áætlun. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, segir að línukerfið í Mývatnssveit sé yfir fimmtíu ára gamalt. Það hafi verið byggt á höndum og ekki allsstaðar hægt að koma tækjum að til viðgerða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert