Deilan enn í hnút

Enginn árangur varð af fundi sjómanna og útgerðarmanna hjá ríkissáttasemjara í morgun. Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir mikið bera á milli og er uggandi vegna kjaradeilunnar. Í sama streng tekur Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannafélagsins. 

Á morgun mun stjórn Landssambands íslenskra útgerðarmanna, LÍÚ, fjalla um verkbann á sjómenn, en á aðalfundi LÍÚ í síðasta mánuði var samþykkt að ef ekki tækjust samningar um skiptingu aflaverðmætis á milli sjómanna og útgerðar, skyldi efnt til atkvæðagreiðslu.

Ástandið skýrist á morgun

„Þarna kom nákvæmlega ekkert nýtt fram og ástandið er óbreytt. Menn ítrekuðu kröfur sínar en töluðu annars ekkert saman. Mín skoðun er sú að þessi fundur hafi verið haldinn að undirlagi sáttasemjara vegna þess að honum ber skylda til þess,“ segir Sævar. „Kröfurnar standa og engar hreyfingar á því. Ástandið skýrist ekkert fyrr en á morgun, þegar LÍÚ fundar og ákveður með þessar aðgerðir sem búið er að boða.“

„Þetta var stuttur fundur og skilaði engri niðurstöðu. Við höfum ekki ákveðið annan fund,“ segir Friðrik.

Grafalvarlegt ástand

„Það ber mikið á milli. Við höfum farið þess á leit að það verði tekið tillit til margföldunar á veiðigjöldum sem hafa verið lögð á með þessum nýju lögum. Núna tekur ríkið stóran hluta af aflaverðmætinu og það er varla hægt að ætlast til þess að við borgum laun samkvæmt hlutaskiptakerfinu af tekjum sem við ekki höfum,“ segir Friðrik. „Þetta er að okkar sjónarhóli stærsta málið í þessu öllu.“

„Við höfum áhyggjur af ástandinu. Það er grafalvarlegt, það er alveg augljóst,“ segir Friðrik. 

„Auðvitað hef ég áhyggjur, ég held að það gildi um alla sem málið varðar og málið þekkja,“ segir Sævar. „Það er alveg sama hvort það er verkfall af okkar hálfu eða verkbann útgerðarmanna, þetta er stór aðgerð og getur verið afdrifarík, bæði fyrir greinina og þjóðina.“

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Sverrir Vilhelmsson
Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert