Dóra komin á mbl.is

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Nú er hægt að láta veflesarann Dóru, nýja íslenska talgervilsrödd sem er önnur tveggja radda talgervilsverkefnis Blindrafélagsins, lesa fyrir sig efni á Mbl.is.

„Að eiga kost á upplestri talgervilsraddar á efni á vefsíðum er mjög mikilvægt aðgengismál fyrir alla þá sem ekki geta lesið með hefðbundnum hætti. Sá hópur sem á í erfiðleikum með hefðbundinn lestur telur mörg þúsund einstaklinga.

Um er að ræða blinda, sjónskerta, lesblinda og fólk með annars konar skerðingar sem hamlað geta hefðbundnum lestri. Með því að taka Dóru í notkun tekur Mbl.is enn og aftur forustu meðal fjölmiðla í að stuðla að aðgengi í þágu allra að efni miðilsins,“ að því er segir á vef Blindrafélagsins.

Ástæðan fyrir því að kvenröddin í talgervilsverkefni Blindrafélagsins fékk nafnið Dóra er að Blindrafélaginu áskotnaðist rausnarleg erfðafjárgjöf úr dánarbúi Dóru Sigurjónsdóttur og Richards P. Theodórs. Stórum hluta þeirrar erfðafjárgjafar var ráðstafað í fjármögnun talgervilsverkefnisins. Dórunafnið er því tilkomið til að heiðra minningu þeirra hjóna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert