Drukkin amma með barnabarn í bílnum

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Þekkt eru dæmi um foreldra sem aka drukknir eða undir áhrifum fíkniefna með börn sín í bílnum. Lætur nærri að slík mál hafi komið á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstum mánaðarlega á síðasta ári.

Fáheyrt er hins vegar að afar og ömmur gerist sek um slíkt dómgreindarleysi, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Í vikunni var kona stöðvuð við umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en sú reyndist vera drukkin við stýrið.

Konan var ekki einsömul á ferð því með í för var ólögráða barnabarn hennar. Amman var handtekin og flutt á lögreglustöð, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu barnsins og barnaverndaryfirvöld jafnframt upplýst um málið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert