Komast loksins heim með dæturnar

Friðrik og Bjarnhildur ásamt dætrunum, þeim Helgu Karólínu og Birnu …
Friðrik og Bjarnhildur ásamt dætrunum, þeim Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Myndin er fengin af Facebook-síðu fjölskyldunnar.

„Loksins loksins loksins dómur er fallinn í Tribunal (Hæstarétti í Medellin) og var okkur dæmt í vil,“ eru skilaboð sem hjónin Friðrik Kristinsson og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir hafa birt á Facebook-síðu fjölskyldunnar. Þau hafa verið föst í Kólumbíu í tæpt ár, en þeim hafði ekki verið hleypt úr landi eftir ættleiðingu.

Helga Karólína og Birna Salóme eru orðnar löglegar dætur okkar. Þær eru svo yndislega fullkomnar litlar snúllur, svo innilega litlu stelpurnar okkar og núna fær því enginn breytt!!! Við verðum alltaf saman!!! Við höfum beðið svooo lengi eftir þessum degi og erum við að springa úr gleði og hamingju,“ segja þau ennfremur.

Þá segir að þrír dómarar hafi dæmt í máli þeirra að þessu sinni „og voru þeir allir sammála um það að dómari nr. 9 hafi ekki haft hagsmuni stelpnanna að leiðarljósi og að öll vinna ICBF hafi verið til fyrirmyndar.

Næstu skref eru að fá vegabréf og vegabréfsáritun heim til Íslands fyrir Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Við búumst við því að vera komin heim til Íslands eftir 10–14 daga og er mikil tilhlökkun hjá okkur fjölskyldunni,“ segir ennfremur.

Friðrik og Bjarnhildur Hrönn fóru utan hinn 16. desember í fyrra og væntu þess að geta farið heim með ættleiddar dætur sínar að 6 viknum liðnum eins og vaninn er. Í millitíðinni snerist kólumbískum yfirvöldum hugur og meinuðu þeim að yfirgefa landið með börnin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert