Deiluskipulagi nýs Landspítala frestað

Vinningstillaga SPITAL, módelmynd af 1. áfanga Nýs Landspítala við Hringbraut.
Vinningstillaga SPITAL, módelmynd af 1. áfanga Nýs Landspítala við Hringbraut. Ljósmynd/Hreinn Magnússon

Afgreiðslu á deiliskipulagi nýs Landspítala við Hringbraut var frestað á fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í dag. Boðað hefur verið til aukafundar í ráðinu á mánudag þar sem málið verður afgreitt. Afar skiptar skoðanir hafa verið um deiliskipulagið.

Að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, var engin sérstök ástæða fyrir því að afgreiðslu deiliskipulagsins var frestað fram yfir helgi. Farið var áfram yfir athugasemdir íbúa á fundinum í dag og ein minniháttar breyting á deiliskipulaginu kynnt.

Deiliskipulag nýs Landspítala var kynnt vorið 2011 en samkvæmt tillögunni er ætlunin að byggja upp í nokkrum áföngum við og á Gömlu Hringbraut. Metfjöldi athugasemda barst áður en frestur til þess rann út í lok september, eða um 800 talsins. Skipulagsráð hefur síðan farið yfir athugasemdirnar og hefur nú lokið þeirri vinnu og hyggst meirihlutinn samþykkja deiliskipulagstillöguna á mánudag.

Minnihluti sjálfstæðismanna í borgarstjórn hefur ítrekað andmælt deiliskipulaginu og ítrekar Gísli Marteinn að hann telji þetta vont skipulag. „Mér finnst að Landspítalinn eigi að fá að byggja sig upp og eigi að fá að gera það þarna, en ekki svona.“

Ekki náðist í formann skipulagsráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert